15 ár í þjónustu Guðs!

03 June 2005

Það styttist í djammið

Nú eru aðeins nokkrir klukkutímar í að djammið byrji hjá okkur í '76 árgangnum. Heyrst hefur að '81 árgangurinn hafi tekið forskot á sæluna í gærkvöldi... við eigum nú samt eftir að rústa þeim í djamminu um helgina.

02 June 2005

Miðar á ballið

Við eigum pantaða rúmlega 20 miða á ballið með Brimkló á laugardaginn. Það er hægt að sækja miðana (og borga) milli kl. 16 og 18 í Víkurbæ á morgun föstudag. Miðinn kostar kr. 2.500 og er búist við að það verði fullt hús og brjálað stuð á ballinu ;-) Þeir sem geta ekki mætt í Víkurbæ á þessum tíma getið látið mig (Baldur) vita í síma 690-1222 og þá redda ég málunum.

31 May 2005

Dagskráin

Dagskrá 15 ára fermingarafmælisins okkar er nánast alveg tilbúin:

Föstudagur:

  • Mæting á golfvöllinn kl. 21.00 - þar verða nokkrar léttar holur leiknar og auðvitað verður leikgleðin í fyrirrúmi eins og alltaf þar sem við komum við sögu.
  • Við komuna á golfvöllinn þarf að greiða 2.000 krónur í fermingarmótsgjald en í því er m.a. innifalinn óvæntur glaðningur ;)
  • Það eiga allir að koma með sitt eigið vín
  • Eftir að við höfum leikið okkur á golfvellinum verður haldið á opnunarkvöld Kjallarans sem er nýja kráin í Bolungarvík... þar verður drukkið, dansað og djammað langt fram eftir nóttu... svo verður brjálað eftirpartý einhvers staðar ;)

Laugardagur

  • Mæting kl. 13.30 niðri á höfn þar sem skemmtidagskráin vegna sjómannadagsins verður. Vonandi verður skorað á aðra árganga í keppni í t.d. reiptogi eða sjómanni.
  • Aðalpartýið byrjar svo heima hjá Öldu kl. 17.00. Það er mikilvægt að allir mæti stundvíslega til Öldu vegna óvæntra skemmtiatriða sem verða þar í boði.
  • Við ætlum að grilla á risagrilli í bakgarðinum hjá Öldu og þar kemur hver með sitt góðgæti á grillið... já og svo má ekki gleyma áfenginu - það verður að vera með í för!
  • Eftir grillið verður ýmislegt skemmtilegt í boði, t.d. Singstar keppni og eru nú þegar nær allir búnir að skrá sig til leiks.
  • Eftir Singstar keppnina má búast við að partý aldarinnar nái hámarki áður en við höldum á ball með Brimkló. Við erum búin að útvega öllum hópnum miða á ballið með Brimkló og kostar miðinn kr. 2.500.

Gestabók

Það er komin gestabók á síðuna...

http://guestbook.sparklit.com/entries?gbID=121481

14 May 2005

Myndir

Smá aukaskammtur af myndum.

Þessi mynd var tekin þegar við hittumst árið 1997, fyrirsæturnar heita Baldur Smári og Rúnar Geir. Þetta var einmitt kvöldið þegar Rúnar Geir ætlaði að kenna okkur að drekka kaffi og koníak... það tókst ekki betur til en svo að hann var sofnaður fyrir miðnætti.

Þessi mynd var tekin við sama tilefni og þarna eru þeir Kristján Viðar, Palli og Sigurjón.

10 May 2005

Strippið '97

Guðbjartur og Palli stálu senunni þegar við hittumst sumarið 1997 á hinum magnaða skemmtistað Jóni Bakan. Þeir tóku nett stripp fyrir Dodda og var ekki annað að sjá en að menn hafi skemmt sér mjög vel yfir þessu. Lagið sem strákarnir dönsuðu við var Let Me Be Your Underwear með Club 69... það er algjört möst að hlusta á það á meðan myndirnar eru skoðaðar!

Palli í nettum dansi og í þessum líka glæsilegu fötum...

...Guðbjartur var upp á sitt besta á þessum tíma...

...og Doddi vildi fá að snerta...

...og fékk að ganga ansi langt, mér sýnist Guðbjartur alveg vera að fíla þetta!

Nú var Doddi orðinn æstur og vildi sjá meira af Palla...

07 May 2005

Strippmyndir

Ég er búinn að fá í hendurnar myndir frá því við hittumst á Jóni Bakan árið 1997... þar strippuðu Palli og Guðbjartur sælla minninga... réttið upp hönd sem viljið fá þessar myndir á netið!

Jónas kvænist

Einn af bekkjarfélögum okkar, hann Jónas, er víst að ganga í það heilaga í dag. Við óskum Jónasi og Hrönn, tilvonandi eiginkonu hans, til hamingju með daginn.


Jónas var greinilega snemma farinn að æfa sig í húsverkunum. En hvernig er það, er Jónas sá fyrsti í árgangnum sem gengur í það heilaga?

04 May 2005

...ennþá fleiri myndir

Hérna er Rúnar Geir að æfa sig í fyrirsætustellingunum... flott regnhlíf.


Palli og Doddi kunna líka að brosa fyrir ljósmyndarann...

...og að lokum er það Auður á dansgólfinu í GB... takið eftir Ískóla dósinni í glugganum... síðan hvenær er þetta eiginlega?

Stálið

Bolvíska Stálið (Kristján Jóns) linkaði inn á heimasíðuna okkar og viðurkennir að hafa gaman af því að skoða myndirnar okkar. Af því tilefni kemur ein góð með þessari færslu... er þetta ekki annars Kristján sem þarna lengst til hægri í Millet úlpunni? Hverjir fleiri eru á myndinni?

03 May 2005

Við verðum ekki ein...

Einn af forsprökkum '81 árgangsins hafði samband við mig í kvöld og við ræddum um sjómannadagsahelgina í Bolungarvík sem verður einmitt vettvangur bekkjarmóta '76 og '81 árgangsins. Mér skilst að '81 árgangurinn ætli að fjölmenna vestur, jafnvel að taka rútu að sunnan til ná niður ferðakostnaði. Það er a.m.k. ljóst að það verður brjálað stuð á sjómannadaginn í Bolungarvík og ég mæli með því að sem flestir noti tækifærið og kíkji vestur þessa helgi. Ég ábyrgist að það verður meira fjör á 15 ára fermingarafmælinu okkar en var í þessu partýi á sínum tima.


Á myndinni eru auðvitað Jónas, Alda, Ari og Gummi.

Mánuður til stefnu

Það er ekki nema mánuður í að við hittumst til að rifja upp gömlu góðu tímana. Á föstudagskvöldið hitti ég Öldu, Hrund, Þórönnu, Hörpu og Önnu Helgu og við vorum að velta fyrir okkur hvað væri hægt að gera á þessum merku tímamótum.

Við erum á því að okkur dugi ekki eitt kvöld til fagna endurfundunum, það verður sem sagt djammað á föstudeginum líka. Þar kom upp sú hugmynd að fá sundlaugina eða golfvöllinn lánaðan og fíflast svolítið þar... ég mæli frekar með golfvellinum af ýmsum ástæðum ;-)

Svo er það laugardagurinn, þá er æskilegt að við verðum áberandi á hátíðarhöldunum vegna sjómannadagsins. Svo var rætt um að grilla og djamma heima hjá Öldu fram eftir kveldi... svo verður haldið á brjálað ball í Víkurbæ og þar eigum við líklega eftir að hitta 3 aðra árganga (71-72-81).

Segið endilega álit ykkar á þessu fermingarafmæli... er eitthvað sem þið viljið að verði gert?

Ein mynd að lokum... þessi gerði sitt besta til að þræla mér út í spinning í dag... allt er gert til vera í sem bestu formi á fermingarafmælinu.

Diskómyndir

Þessi mynd er greinilega tekin á hippa-diskóinu, þarna er Bjarni ansi vígalegur með Suðurríkjafánann á höfðinu. Ég geri ráð fyrir að þetta sé Ingvi (78 árgerð) sem situr við hliðina á Bjarna á myndinni.


Svonu klæddu stelpurnar sig á diskótekunum í gamla daga, er þetta ekki Hrund?

Flumbri

Guðbjartur var nú ekki sá heppnasti í bekknum því hann var alltaf eitthvað slasaður, oftar en ekki brotinn. Á þessari mynd er hann í það minnsta með einhverjar umbúðir á nefinu... mig minnir að þetta nefbrot tengist eitthvað Stiga-sleða. Annars er Anna Helga líka með á þessari mynd.

02 May 2005

Skíðaferðalögin

Við fórum í nokkur skíðaferðalög á GB-árunum og var þar greinilega mikið fjör. Hérna er ein mynd af Hörpu, Auði, Öldu og Katrínu...


...og ætli þetta sé ekki Bjarni, Sigurbjörn, Hrund og Þóranna...

28 April 2005

I'm too sexy...

Við þekkjum öll þessa setningu: "I'm too sexy... for this school!" En það er spurning hvort það hafi verið efst í huga þessa unga manns þegar þessi mynd var tekin.

27 April 2005

Hippaþema

Líklega var hippaþema á þessu diskóteki í GB í gamla daga...

26 April 2005

Fyrirsæturnar?

Það er augljóst að Jónas og Rúnar Geir voru upprennandi fyrirsætur eins og sjá má á þessari mynd:

Þessi mynd gæti verið úr einhverju skíðaferðalagi á Seljalandsdal...

Fermingarmyndin

Þetta er myndin af okkur ásamt séra Sigurði Ægissyni í Hólskirkju fyrir 15 árum síðan.



Smellið á myndina til að fá stærri mynd!

23 April 2005

Ein smá saga...

Fyrir 5 árum síðan var 10 ára fermingarafmæli hjá '76 árgangnum í Bolungarvík. Ég (Baldur Smári) man nú ekki svo mikið eftir því sökum ofurölvunar en ég man nú samt eftir því að ég og Stjáni Wonder (Kristján Viðar) flippuðum út við lagið Freestyler... og svo man ég eftir strippkeppninni. Þar voru 2 aðilar af sitt hvoru kyninu sem fækkuðu fötum, svo fór að drengurinn stóð á miðju gólfinu á nærbuxunum einum fata og hafði athygli allra á sér. Þá datt Stjána Wonder snjallræði í hug - og hann var óvenju fljótur að hugsa í þetta skiptið - Stjáni læddist aftan að Palla og kippti niðrum hann nærbuxunum... það var ógleymanlegt moment!

Ég held ég sé búinn að finna flipplag 15 ára fermingarafmælisins... Pond Life - Ring Ding Ding... algjör snilld ;)

Fermingarbörnin 22. apríl 1992

Alda Karen Sveinsdóttir
Anna Helga Guðmundsdóttir
Ari Hjörvar Ólafsson
Auður Björgvinsdóttir
Baldur Smári Einarsson
Bjarni Heiðar Valsson
Erna Jónsdóttir
Guðbjartur Atli Bjarnason
Guðmundur Gunnarsson
Guðrún Halldóra Vilmundardóttir
Harpa Rut Rögnvaldsdóttir
Helga Salóme Ingimarsdóttir
Hrund Karlsdóttir
Jónas Guðmundsson
Katrín Dröfn Markúsdóttir
Kristján Guðjón Bjarnason
Kristján Viðar Valdemarsson
Kristjón Kormákur Guðjónsson
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Róbert Anni Gunnarsson
Rúnar Geir Guðmundsson
Sigurbjörn Ingi Magnússon
Sigurjón Þórisson
Þorgeir Jónsson
Þorgils Gunnarsson
Þóranna Þórarinsdóttir