Dagskráin
Dagskrá 15 ára fermingarafmælisins okkar er nánast alveg tilbúin:
Föstudagur:
- Mæting á golfvöllinn kl. 21.00 - þar verða nokkrar léttar holur leiknar og auðvitað verður leikgleðin í fyrirrúmi eins og alltaf þar sem við komum við sögu.
- Við komuna á golfvöllinn þarf að greiða 2.000 krónur í fermingarmótsgjald en í því er m.a. innifalinn óvæntur glaðningur ;)
- Það eiga allir að koma með sitt eigið vín
- Eftir að við höfum leikið okkur á golfvellinum verður haldið á opnunarkvöld Kjallarans sem er nýja kráin í Bolungarvík... þar verður drukkið, dansað og djammað langt fram eftir nóttu... svo verður brjálað eftirpartý einhvers staðar ;)
Laugardagur
- Mæting kl. 13.30 niðri á höfn þar sem skemmtidagskráin vegna sjómannadagsins verður. Vonandi verður skorað á aðra árganga í keppni í t.d. reiptogi eða sjómanni.
- Aðalpartýið byrjar svo heima hjá Öldu kl. 17.00. Það er mikilvægt að allir mæti stundvíslega til Öldu vegna óvæntra skemmtiatriða sem verða þar í boði.
- Við ætlum að grilla á risagrilli í bakgarðinum hjá Öldu og þar kemur hver með sitt góðgæti á grillið... já og svo má ekki gleyma áfenginu - það verður að vera með í för!
- Eftir grillið verður ýmislegt skemmtilegt í boði, t.d. Singstar keppni og eru nú þegar nær allir búnir að skrá sig til leiks.
- Eftir Singstar keppnina má búast við að partý aldarinnar nái hámarki áður en við höldum á ball með Brimkló. Við erum búin að útvega öllum hópnum miða á ballið með Brimkló og kostar miðinn kr. 2.500.

<< Home