Mánuður til stefnu
Það er ekki nema mánuður í að við hittumst til að rifja upp gömlu góðu tímana. Á föstudagskvöldið hitti ég Öldu, Hrund, Þórönnu, Hörpu og Önnu Helgu og við vorum að velta fyrir okkur hvað væri hægt að gera á þessum merku tímamótum.
Við erum á því að okkur dugi ekki eitt kvöld til fagna endurfundunum, það verður sem sagt djammað á föstudeginum líka. Þar kom upp sú hugmynd að fá sundlaugina eða golfvöllinn lánaðan og fíflast svolítið þar... ég mæli frekar með golfvellinum af ýmsum ástæðum ;-)
Svo er það laugardagurinn, þá er æskilegt að við verðum áberandi á hátíðarhöldunum vegna sjómannadagsins. Svo var rætt um að grilla og djamma heima hjá Öldu fram eftir kveldi... svo verður haldið á brjálað ball í Víkurbæ og þar eigum við líklega eftir að hitta 3 aðra árganga (71-72-81).
Segið endilega álit ykkar á þessu fermingarafmæli... er eitthvað sem þið viljið að verði gert?
Ein mynd að lokum... þessi gerði sitt besta til að þræla mér út í spinning í dag... allt er gert til vera í sem bestu formi á fermingarafmælinu.


<< Home