15 ár í þjónustu Guðs!

23 April 2005

Ein smá saga...

Fyrir 5 árum síðan var 10 ára fermingarafmæli hjá '76 árgangnum í Bolungarvík. Ég (Baldur Smári) man nú ekki svo mikið eftir því sökum ofurölvunar en ég man nú samt eftir því að ég og Stjáni Wonder (Kristján Viðar) flippuðum út við lagið Freestyler... og svo man ég eftir strippkeppninni. Þar voru 2 aðilar af sitt hvoru kyninu sem fækkuðu fötum, svo fór að drengurinn stóð á miðju gólfinu á nærbuxunum einum fata og hafði athygli allra á sér. Þá datt Stjána Wonder snjallræði í hug - og hann var óvenju fljótur að hugsa í þetta skiptið - Stjáni læddist aftan að Palla og kippti niðrum hann nærbuxunum... það var ógleymanlegt moment!

Ég held ég sé búinn að finna flipplag 15 ára fermingarafmælisins... Pond Life - Ring Ding Ding... algjör snilld ;)