15 ár í þjónustu Guðs!

03 May 2005

Við verðum ekki ein...

Einn af forsprökkum '81 árgangsins hafði samband við mig í kvöld og við ræddum um sjómannadagsahelgina í Bolungarvík sem verður einmitt vettvangur bekkjarmóta '76 og '81 árgangsins. Mér skilst að '81 árgangurinn ætli að fjölmenna vestur, jafnvel að taka rútu að sunnan til ná niður ferðakostnaði. Það er a.m.k. ljóst að það verður brjálað stuð á sjómannadaginn í Bolungarvík og ég mæli með því að sem flestir noti tækifærið og kíkji vestur þessa helgi. Ég ábyrgist að það verður meira fjör á 15 ára fermingarafmælinu okkar en var í þessu partýi á sínum tima.


Á myndinni eru auðvitað Jónas, Alda, Ari og Gummi.