15 ár í þjónustu Guðs!

03 June 2005

Það styttist í djammið

Nú eru aðeins nokkrir klukkutímar í að djammið byrji hjá okkur í '76 árgangnum. Heyrst hefur að '81 árgangurinn hafi tekið forskot á sæluna í gærkvöldi... við eigum nú samt eftir að rústa þeim í djamminu um helgina.

02 June 2005

Miðar á ballið

Við eigum pantaða rúmlega 20 miða á ballið með Brimkló á laugardaginn. Það er hægt að sækja miðana (og borga) milli kl. 16 og 18 í Víkurbæ á morgun föstudag. Miðinn kostar kr. 2.500 og er búist við að það verði fullt hús og brjálað stuð á ballinu ;-) Þeir sem geta ekki mætt í Víkurbæ á þessum tíma getið látið mig (Baldur) vita í síma 690-1222 og þá redda ég málunum.